Góðann daginn
Mættur enn eina helv.... ferðina á hafið ... Skipstjórinn var ekki
alveg á því
að byrja þetta í rólegheitunum og leyfa manni að finna gírinn...
neinei ,
farnir út kl 10 um morguninn á mánudag, trollið látið fara um kl
17.00 hann
hífir svo um kl 21.30 og 15 tonn í af pínkulítilli ýsu sem minnti á
gullfiska
og vannst þetta seint og illa og þegar svona mikið er í af ýsu þá
verður hún
að drullu , undir restina var eins og við værum að snyrta plokkfisk
eða
eitthvað ... Ég er svona aðeins að ná áttum , ég er bara búinn að
vera í það
mikilli slökun og rólegheit í fríinu að það er stórt stökk að henda
sér um
borð í frystitogara og þurfa byrja að haga sér eins og
villidýr.
Ég hef virkilega góða tilfinningu að þetta verði góður túr og betri
en sá
síðasti sem var MJÖG góður , gengið er búið að vera hækka sem gefur
okkur
mikið. Ég set markið hátt og ég vil sjá hátt í 100 milljón króna
aflaverðmæti,
án djóks ... ég er kröfuharður og ef það svo til gengur eftir þá
verð ég
sáttur. Svo framalega sem túrarnir fara ekki undir 80 milljónir þá
er í lagi
að vera hérna, eins og gengið er núna.
Ég vildi bara svona stimpla mig aðeins inn hérna lika á blogginu og
bið ykkur
um að vera dugleg að sækja fréttir af skrímslunum á Þerney hérna á
blogginu